top of page
pexels-pixabay-358636.jpg

Höldum húsum heilum
með reglulegri skoðun.

Við leggjum okkur mikið fram við að veita framúrskarandi þjónustu á ástandsskoðunum fasteigna. Við vinnum alltaf að því að geta mætt þínum þörfum svo þú getir verið örugg/ur með þína eign.

Top
Um Okkur

UM OKKUR

Við erum tengdafeðgar með tæpa 70 ára starfsreynslu í byggingariðnaði á milli okkar. Annar okkar er Húsasmíðameistari og byggingastjóri, hinn er Pípulagnarmaður. Auk þess höfum við báðir lokið námskeiðum í Raki og mygla í húsum ásamt framhaldsnámskeiði.

Saman höfum við því víðtæka reynslu á öllu því sem við kemur að ástandi og viðhaldi húsnæða og mannvirkja. Við höfum ávallt unnið okkar störf með fagmennsku í fyrirrúmi og er umhugað að hver íbúi viti nákvæmt ástand sinnar eignar.

Eftir mikla reynslu í iðnaði þá áttum við okkur á því að lélegt ástand fasteignar getur haft í för með sér alvarlegt heilsufars- og umhverfisleg áhrif og viljum við þá tryggja öryggi og heilsu manna eftir bestu getu.

Með okkar þjónustu fæst ítarlega unnin skýrsla, ef þess er óskað, og erum við með sama skýrslukerfi og flestar verkfræðistofur nota. Það kerfi er með auðskiljanlegri útlistun á ástandi með myndum og skýringarþáttum um galla og mögulega viðhaldsþörf.

Þjónustan

ÞJÓNUSTULEIÐIR

Ástandsskoðun fasteigna

Fyrir kaupendur/seljendur, eigendur eða leigjendur fasteigna sem vilja láta yfirfara eignina til að athuga með eiginlegt ástand hennar.

Ástandsskoðun bygginga

Fyrir húsfélög, fyrirtæki og einstaklinga sem vilja staka eða reglulega yfirferð á byggingu til að átta sig á mögulegri viðhaldsþörf.

Snöggskoðun
 

Fyrir kaupendur/seljendur eigendur eða leigendur fasteigna með nauman tíma og vilja láta athuga ástand eignarinnar með skjótum hætti.

Verðlisti

VERÐLISTI

Öll verð eru með vsk inniföldum og miðast við fermetrafjölda við skráningu í Þjóðskrá.

FÓLKIÐ

adalsteinn.png
Aðalsteinn Stefánsson

Húsasmíðameistari og Byggingastjóri

runar.png
Rúnar S. Ólafsson

Pípulagningarmaður

ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR

Ég fékk ástandsskoðun á fasteign sem seljandi og var mjög ánægður með þjónustuna. Viðbrögðin voru skjót og fagleg, og skoðunin sjálf virkaði bæði vönduð og vel unnin. Niðurstöðurnar voru skýrar og veittu okkur gott öryggi varðandi næstu skref í söluferlinu. Ég get heilshugar mælt með Heil hús."

Páll Sigurður eigandi

Ástandsskoðun

Við fengum tengdafeðgana til að ástandsskoða fasteign sem við höfum gert kauptilboð í og vorum hæstánægð. Þeir voru stundvísir, vandvirkir og útskýrðu allt á skýran og faglegan hátt. Skýrslan sem við fengum var ítarleg, greinargóð og mjög gagnleg fyrir áframhaldandi ákvörðunartöku. Mælum eindregið með þjónustunni og myndum hiklaust nota hana aftur. Við mælum eindregið með að bóka hjá Heil hús til að fá ástandsskoðun á framtíðar eigninni ykkar

Gulli og Marín Kaupendur

Ástandsskoðun fasteigna 

 Við fengum frábæra þjónustu hjá Heil Hús við ástandsskoðun á íbúð sem við vorum að kaupa. Þeir voru mjög fagmannlegir, ítarlegir og kurteisir í allri sinni vinnu. Skýrslan var vel uppsett, greinargóð og stóðst þær væntingar sem við vorum með. Þjónustan var einnig fljót og skilvirk. Mæli eindregið með!

Edda Marín kaupandi

Ástandsskoðun fasteigna

Við fengum Heil hús til að framkvæma ástandsskoðun á húsi sem við vorum að skoða að kaupa og myndum við mæla með þeirri þjónustu fyrir alla sem eru í sæmu hugleiðingum. Þeir voru svo ótrúlega almennilegir og með fagleg og vönduð vinnubrögð, útskýrðu allt svo vel fyrir okkur. Þeir voru alveg yndislegir báðir tveir. Skýrslan sem við fengum eftir ástandsskoðunina var til fyrirmyndar, vel upp sett og auðvelt að lesa yfir hana. Skýrslan gaf okkur skýra mynd á ástandi hússins og hjálpaði okkur að taka ákvörðun varðandi næstu skref í kaup ferlinu.

Signý kaupandi

Ástandsskoðun fasteigna

Hafa Samband

HAFA SAMBAND

Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að finna út hvað virkar best fyrir þig!

Hvernig skoðun viltu?

Endilega hafðu samband og við munum aðstoða þig við að halda húsinu þínu heilu!

Hafa samband

s: 690 6906 

heilhus@heilhus.is

Kt. 690722-0380

Vsk nr. 146-369

  • Facebook

© 2025 by Replika ehf

bottom of page